kr. 0

Karfa

Engar vörur í körfunni þinni!

Persónuverndarstefna netverslunarinnar Tusah Ísland

Þessi persónuverndarstefna lýsir því hvernig Bardagalistir ehf., kt. 660925-0150, safnar, notar og vinnur með persónuupplýsingar þegar þú heimsækir eða verslar á vefsvæðinu www.tusah.is.

Stefnan er sett í samræmi við íslensk lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.

Síðast uppfært: 15.02.2026

Ábyrgðaraðili

Bardagalistir ehf. (hér eftir „fyrirtækið“ ) er ábyrgðaraðili þeirra persónuupplýsinga sem safnað er í gegnum vefsvæðið.

Söfnun og notkun persónuupplýsinga

Við bjóðum ekki upp á að viðskiptavinir útbúi innskráningarreikninga. Öll söfnun persónuupplýsinga tengist því eingöngu afgreiðslu pantana eða beinum samskiptum að þínu frumkvæði.

Þegar þú pantar í netverslun okkar söfnum við eftirfarandi upplýsingum:

  • Samskiptaupplýsingar: Netfang og símanúmer.
  • Persónuupplýsingar: Nafn, heimilisfang og kennitala.
    • Kennitala er hluti þeirra upplýsinga sem afhendingarþjónustur nýta til þess að koma vörum á öruggan máta í hendur réttra aðila.
  • Pöntunarupplýsingar: Upplýsingar um þær vörur sem þú kaupir.

Greiðsluupplýsingar:

Við söfnum hvorki eða sjáum, né heldur geymum, greiðsluupplýsingar þínar. Öll greiðsluþjónusta fer fram í gegnum öruggar og vottaðar greiðslugátti/síður þriðja aðila, sem eru Straumur Payments (Kvika banki) og Netgíró (Kvika banki). Þessir aðilar eru ábyrgðaraðilar þeirra upplýsinga sem aflað er í þeim tilgangi að innheimta greiðslu.

Tilgangur vinnslunnar

Við söfnum og vinnum eingöngu með þær upplýsingar sem nauðsynlegar eru til að veita þér umbeðna þjónustu og uppfylla skyldur um bókhald.

Vefkökur (Cookies)

Vefsvæðið okkar (hýst á WordPress) notar vefkökur til að tryggja grunnvirkni.

  • Nauðsynlegar kökur: WordPress og WooCommerce (verslunarviðbótin) nota kökur til að muna hvað er í körfunni þinni á meðan þú vafrar um síðuna. Þessar kökur eru nauðsynlegar fyrir virkni verslunarinnar og safna ekki persónugreinanlegum upplýsingum til markaðssetningar.
  • (Valfrjálst) Greiningarkökur: Við gætum notað tól eins og Google Analytics til að safna ópersónugreinanlegum upplýsingum um notkun á vefnum (t.d. fjölda heimsókna, hvaða síður eru skoðaðar) til að bæta þjónustu okkar. Slík söfnun er aðeins gerð með þínu samþykki, sem þú gefur í gegnum vefkökuborða við fyrstu heimsókn.

Þú getur ávallt stjórnað eða eytt vefkökum í gegnum stillingar vafrans þíns.

Miðlun til þriðju aðila (Vinnsluaðilar)

Við seljum, leigjum eða deilum persónuupplýsingum þínum ALDREI til þriðja aðila í markaðstilgangi.

Við deilum aðeins upplýsingum með völdum þjónustuaðilum (vinnsluaðilum) sem eru nauðsynlegir til að ljúka þjónustunni. Þessir aðilar fá aðeins þær upplýsingar sem þeir þurfa til að sinna sínu hlutverki.

Vinnsluaðilar okkar eru:

  • Greiðsluþjónusta: Straumur Payments og Netgíró vegna færsluhirðingu greiðslna.
  • Sendingaraðilar: Pósturinn til að koma pöntun þinni á áfangastað.
  • Hýsingaraðili: Automattic Inc (WordPress)
  • Bókhaldsþjónusta/Endurskoðandi: Vegna lagaskyldu um bókhald.
  • Reikningagerð og bókhaldslausnir: Visma International Holding AS (Payday)

Þessir aðilar eru allir bundnir skyldu um að meðhöndla gögnin á öruggan hátt og í samræmi við persónuverndarlög.

Geymslutími gagna

Við geymum persónuupplýsingar þínar aðeins eins lengi og nauðsynlegt er miðað við tilgang vinnslunnar.

  • Pöntunargögn: Geymd í 24 mánuði vegna ábyrgðar- og skilamála.
  • Bókhaldsgögn: Reikningsupplýsingar og gögn sem tengjast sölunni eru geymd í 7 ár í samræmi við íslensk bókhaldslög.

Öryggi gagna

Við leggjum áherslu á öryggi þitt. Vefsvæðið okkar notar SSL dulkóðun (https://) til að vernda allar upplýsingar sem fara á milli þín og vefþjónsins auk þess að vefsvæðið er stöðugt uppfært og öryggi viðhaldið til hins ítrasta, af hýsingaraðila, WordPress.

Réttindi þín

Samkvæmt persónuverndarlögum átt þú ákveðin réttindi varðandi þínar persónuupplýsingar:

  • Réttur til aðgangs: Þú getur óskað eftir afriti af þeim gögnum sem við höfum um þig og munum við verða við slíkri beiðni án tafar.
  • Réttur til leiðréttingar: Þú getur óskað eftir að rangar eða ófullnægjandi upplýsingar séu leiðréttar og munum við verða við slíkri beiðni án tafar.
  • Réttur til eyðingar: Þú getur óskað eftir að upplýsingum um þig sé eytt, nema okkur sé skylt að geyma þær samkvæmt lögum (sbr. bókhaldslög).
  • Réttur til að kvarta: Þú átt rétt á að leggja fram kvörtun til Persónuverndar (www.personuvernd.is) ef þú telur að brotið sé á réttindum þínum.

Ef þú vilt nýta þessi réttindi, vinsamlegast hafðu samband við okkur á bardagalistir@bardagalistir.is.

Breytingar á stefnunni

Þessi persónuverndarstefna kann að vera uppfærð til að endurspegla breytingar á starfsemi okkar eða vegna lagabreytinga. Allar breytingar öðlast gildi þegar þær eru birtar á vefsvæðinu. Við hvetjum þig til að skoða stefnuna reglulega.

Bardagalistir ehf, 2026

Tusah Ísland
Rekið af Bardagalistir ehf
Kennitala: 660925-0150
VSK nr. 158798
  • 2026 bardagalistir ehf