Sé nánari skýringa þörf á innihalda skilmála þessara, skal viðskiptavinur hafa samband á netfangið info@bardagalistir.is.
Persónuverndarskilmála netverslunarinnar má nálgast á eftirfarandi hlekk: Persónuverndarskilmálar (opnast í nýjum flipa)
Skilmálar þessir gilda um öll viðskipti í vefverslun. Skilmálarnir eru í samræmi við gildandi íslensk lög, m.a. lög nr. 48/2003 um neytendakaup, lög nr. 50/2000 um lausafjárkaup, lög nr. 16/2016 um neytendasamninga og lög nr. 30/2002 um rafræn viðskipti og aðra rafræna þjónustu.
Skilmálar þessir takmarka ekki lögbundin réttindi neytenda. Komi ósamræmi upp ganga lög framar.
Upplýsingar fyrir kaup
Á vefsíðu og í greiðsluferli skulu á skýra máta koma fram upplýsingar um:
Pöntun, staðfesting og reikningur
Innsláttur kennitölu í greiðsluferli er skilyrði.
Pöntun telst samþykkt þegar viðskiptavinur fær staðfestingu í tölvupósti, að fullnaðargreiðslu lokinni. Reikningur fylgir með staðfestingu og með vöru.
Seljandi áskilur sér rétt til að hafna pöntun ef grunur er um misritun, vafasama notkun greiðslukorts, ef heimilisfang sem skráð er finnst ekki eða ef villa er í vörubirgðum. Skal seljandi þá endurgreiða viðskiptavini án tafar.
Allar upplýsingar í vefverslun eru birtar með fyrirvara um prentvillur og villur í skráningu á birgðastöðu. Sama gildir um villur við verðskráningu sem eru þessi eðlis að viðskiptavin má vera ljóst að um augljós mistök sé að ræða en við slíkar aðstæður áskilur Tusah.is sér rétt til að fella niður pöntun og endurgreiða viðskiptavini án tafar.
Öll verð í vefverslun eru gefin upp í íslenskum krónum og með virðisaukaskatti (24%).
Greiðsla og afhending
Hægt er að greiða með öllum helstu debit- og kreditkortum, Google Pay, Apple Pay eða Netgíró. Kortafærslur, Google Pay og Apple Pay greiðslur fara í öllum tilfellum í gegnum örugga greiðslusíðu hjá Straumur greiðslumiðlun hf., dótturfélagi Kviku banka hf. sem er ekki hýst hjá seljanda. Seljandi hvorki fær, sér, né geymir kortaupplýsingar viðskiptavinar. Greiðslur í gegnum greiðsluþjónustu Netgíró fer í öllum tilfellum í gegnum örugga greiðslusíðu Netgíró, sem er í eigu Kviku banka hf.
Afgreiðsla pantana tekur 0-2 virka daga og fer að því loknu til Póstsins til afhendingar.
Afhending pantana fer fram með Póstinum og samkvæmt þeim skilmálum sem Pósturinn birtir hverju sinni. Kaupandi ber alla ábyrgð á að velja réttan afhendingarstað í greiðsluferlinu.
Um þjónustu Póstsins gilda þeir skilmálar sem má finna hér: Pósturinn - Viðskiptaskilmálar (opnast í nýjum flipa)
Sendingarkostnað Póstsins má finna hér: Pósturinn - Verðskrá (opnast í nýjum flipa)
Áhætta af vöru flyst til neytanda við afhendingu. Ef tafir verða á því að varan fari í afhendingarferli, skal seljandi tilkynna viðskiptavini það svo fljótt sem auðið er og bjóða t.d. nýjan afhendingartíma eða endurgreiðslu.
Fjarsala og réttur til að falla frá samningi (14 dagar)
Viðskiptavinur getur fallið frá fjarsölusamningi innan 14 daga frá móttöku vöru, án þess að tilgreina nokkra ástæðu. Til að nýta réttinn skal senda ótvíræða tilkynningu með tölvupósti áður en frestur rennur út og skila vöru til seljanda innan 14 daga frá tilkynningu.
Réttur til að falla frá samningi:
Þú hefur rétt til að falla frá þessum samningi án þess að tilgreina nokkra ástæðu innan 14 daga.
Frestur til að falla frá samningnum rennur út 14 dögum eftir þann dag sem þú eða annar einstaklingur sem þú tilgreindir, annar en flutningsaðilinn, hefur fengið vöruna í sína vörslu.
Til þess að nýta réttinn til að falla frá samningnum þarft þú að tilkynna okkur, Bardagalistir ehf., info@bardagalistir.is, ákvörðun þína um að falla frá samningnum með ótvíræðri yfirlýsingu (t.d. með bréfi sendu í pósti eða tölvupósti). Berist ótvíræð yfirlýsing með tölvupósti, munum við staðfesta móttöku svo fljótt sem auðið er.
Til að fresturinn teljist virtur nægir þér að senda tilkynningu um að þú neytir réttar þíns til að falla frá samningi áður en fresturinn rennur út.
Áhrif þess að falla frá samningi:
Ef þú fellur frá þessum samningi munum við endurgreiða þér fullt verð vörunnar. Endurgreiðsla fer fram án ástæðulausrar tafar og alla jafna ekki síðar en 14 dögum eftir að okkur berst tilkynning um um að þú fallir frá þessum samningi, þó ekki fyrr en við höfum fengið vöruna aftur í okkar hendur, eða þú hefur lagt fram sönnun fyrir endursendingu hennar. Við munum endurgreiða þér með því að nota sama greiðslumiðil og þú notaðir í upphaflegu viðskiptunum, nema þú hafir samþykkt annað sérstaklega.
Þú þarft að endursenda eða afhenda vöruna til okkar, í upprunalegu ástandi, í upprunalegum umbúðum og með öllum merkimiðum áföstum, án ástæðulausrar tafar og eigi síðar en 14 dögum eftir daginn sem þú tilkynnir okkur ákvörðun þína um að falla frá samningnum. Fresturinn telst virtur ef þú endursendir vöruna fyrir lok 14 daga tímabilsins.
Þú þarft að bera beinan kostnað af endursendingu vörunnar.
Þau atriði sem yfirlýsing skal innihalda (Reglugerð nr. 435/2016 um upplýsingar um nýtingu réttar til að falla frá samningi):
Komi upp galli í vöru er viðskiptavini boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað eða endurgreiðum sé þess krafist. Vinsamlegast sendið okkur tölvupóst á netfangið galli@bardagalistir.is með upplýsingum um galla vörunnar.
Ef vara reynist sannarnlega gölluð (t.d. framleiðslugalli) á viðskiptavinur rétt á úrbótum í formi endurgreiðslu eða nýrrar afhendingar sambærilegrar vöru. Ráðlögð notkun, meðferð og viðhald fer eftir leiðbeiningum framleiðanda. Skemmdir vegna rangrar notkunar eða illrar meðferðar falla ekki undir galla hugtakið.
Við móttöku er viðskiptavini ráðlagt að skoða vöruna. Komi í ljós við afhendingu að varan sé skemmd, skal strax hafa samband við seljanda á info@bardagalistir.is.
Öll meðferð persónuupplýsinga fer fram í samræmi við gildandi lög nr. 90/2018 um persónuvernd, engin gögn eru seld þriðja aðila í nokkrum einasta tilgangi. Persónuverndarskilmála má finna hér: Persónuverndarskilmálar (opnast í nýjum flipa).
Allt efni sem birtist á vefsíðu Tusah.is, er höfundarréttarvarið og Bardagalistir ehf. sérleyfishafi á notkun efnisins. Á það við um texta, grafík, video, lógó og myndir. Efnið má ekki nota, breyta, birta, endurgera, afrita, selja eða hagnýta á annan hátt af þriðja aðila.
Um viðskiptaskilmála þessa gilda Íslensk lög. Rísi ágreiningur milli aðila skal leitast við að leysa hann með samkomulagi. Um efni þessara viðskiptaskilmála eða vegna brota á þeim má bera viðkomandi mál undir kærunefnd þjónustu- og lausafjárkaupa hjá Neytendastofu. Ef ekki næst samkomulag skulu ágreiningsmál rekin fyrir Héraðsdómi Reykjaness.
